Fjölþjóðleg námskeið og vinnustofur 2012

  1. Ítalía í maí: Vinnustofa um hópa og hópafræði - Group
  2. 10-16. júní 2012: Grundtvig námskeið 1 um Reynslunám. Styrkt af Grundtvig styrkjaáætlun Evrópusambandsins
  3. Ísland í ágúst: Vinnustofa um nám og þögn – Silence 
  4. Litháen í september: Leið Reynslunnar – Via Experientia 3, LTTC 
  5. 7-13. október 2012: Grundtvig námskeið 2 um Reynslunám. Styrkt af Grundtvig styrkjaáætlun Evrópusambandsins

Hópefli

Á að styrkja hópinn í verklagi og samskiptum sem verða til góðs fyrir einstaklinginn og hópinn í heild sinni og verkefnin sem hann leysir af hendi. Við skilgreinum fjórar gerðir af eflingu fyrir hópa:
Fjörefli er mjög stutt (1-2 stundir) og er notað til að lyfta hópum upp og hressa þá við. Með leikjum og skemmtilegum æfingum hristist hópurinn saman. Skilar sér oft í léttara andrúmslofti og húmor á vinnustað.

lesa meira ... Hópefli

Um okkur

Áskorun ehf er þjálfunarfyrirtæki sem …

  • sérhæfir sig í að efla og styrkja einstaklinga og hópa til að geta meira og geta betur
  • veit að bak við tækin og tæknina er fólk, og að fólkið er auðlind
  • beitir jafnt hefðbundnum námsaðferðum sem óhefðbundnum og skapandi aðferðum til að efla sjálfsskilning þátttakenda og samskiptahæfni
  • leggur áherslu á að laða fram virka þátttöku í námshópum sínum og tengja nýtt nám við fyrri reynslu
  • hefur 20 ára reynslu af þjálfun á Íslandi og meginlandi Evrópu, þ.á.m. Austurríki, Belgíu, Bretlandi, Danmörku, Frakklandi, Færeyjum, Hollandi, Írlandi, Ítalíu, Króatíu, Litháen, Rúmeníu, Slóveníu, Slóvakíu, Ungverjalandi

 Virðisauki í verkefnum Áskorunar er …

  • þátttaka í námi sem byggist á reynslu þátttakendanna og stækkar reynslubanka þeirra 
  • að „það er leikur að læra, leikur sá er mér kær“ - nám og skemmtileg samvera haldast í hendur 
  • klæðskerasaumuð þjálfun þar sem þátttakendur læra með höfðinu, hjartanu og öllum líkamanum

 Við trúum á ...

  • að einstaklingurinn sé hluti af samfélaginu og menningunni sem umlykur hann og líf hans 
  • að í samspili einstaklingsins við menningu sína og umhverfi verði til ný þekking 
  • vilja og getu einstaklingsins til að læra, til að tileinka sé nýja þekkingu og til að takast á við breytingar
  • rétt allra til að taka þátt í innihaldsríkum samskiptum við aðra, þar sem virðing, reisn og það einstaka við einstaklinginn er í hávegum haft


Áhugavert efni

Australian Journal of Outdoor Education
Í þessu ástralska tímariti um útinám má finna fjölmargar góðar fræðigreinar um útinám og skyld efni. Við Íslendingar höfum haft frjálsan landsaðgang að mörgum helstu fræðitímaritum á fjölda fræðisviða, síðan árið 1999.

The Journal of Experiential Education - Tímarit um reynslunám
Frábært fagtímarit um reynslunám sem kemur út tvisvar á ári. Við Íslendingar höfum frían aðgang að tímaritinu frá árinu 1999.

Peer-Reviewed Journals in Outdoor Education
Áhugaverð gátt um ýmislegt er varðar þjálfun, kennslu, aðferðir reynslunáms, o.þ.h.

Via Experienta
Via Experienta handbók
Via Experientia gögn / linkur


 

Ýmis fróðleikur um útinám

Upplýsingagátt um útinám - Outdoor Learning Research Sources
Hér er hægt að nálgast vefi um m.a. rannsóknir, umræðuhópa, tímarit og ráðstefnur. Ansans ári góð gátt!

Kenningar um útinám - Theories of Outdoor Education
Hér fjallar James Neill í stuttum máli um ýmsar kenningar sem tengdar hafa verið við útinám.

Yfirlit um rannsóknir á útinámi - A Review of Research on Outdoor Learning
James Neill hefur hér tekið saman niðurstöður ýmissa rannsókna á sviðinu “að læra úti".

Yfirlits- og samanburðarrannsókn gerð í Englandi árið 2004, sem náði til 150 rannsókna um útinám, frá árunum 1993-2003. Hægt er að nálgast niðurstöðurnar í mismunandi útfærslum: Samantekt á vef, samantekt á pdf (pdf niiðurhal), grein í fræðiriti um niðurstöðurnar.


 

Útinám og ferðaþjónusta

Outdoor adventure tourism A Review of Research Approaches - Yfirlitsrannsókn á ævintýratengdri ferðaþjónstu.
Hér er fjallað um helstu einkenni ævintýraferðaþjónustu, vísað í fjölmargar rannsóknir og einnig fjallað um þær nálganir sem rannsakendur beita í rannsóknunum.


 

Skrár til að hlaða niður:
Download this file (All_equal-All_Different__Education_Pack.pdf)All_equal-All_Different__Education_Pack.pdf[Námsbók sem gefin var út af Evrópuþinginu til að styðja við æskulýðsstarf sem fer fram í fjölmenningarlegu samhengi og samfélögum fjölbreytileikans.]1334 Kb
Access this URL (/www.hjalti.com/test/uploads/MADZINGA.pdf)MADZINGA[Skýrsla um LTTC (langtíma þjálfunarnámskeið) fyrir æskulýðsstarfsmenn í Evrópu sem byggir á kenningum um fjölbreytileika og reynslunám.]2859 Kb
Access this URL (/www.hjalti.com/test/uploads/T-kit_3_project_management.pdf)T Kit 3 Project management[Þjálfunarhefti 3 Verkefnastjórnun, samið og gefið út af „Samstarfsverkefni um þjálfun æskulýðsstarfsmanna“ á vegum Evrópusambandsins og Evrópuþingsins. Hluti af 10 hefta ritröð um ýmis efni sem gagnast þeim sem taka þátt fjölþjóðlegum verkefnum.]1282 Kb
Download this file (Total_Counseling_a_Handbook.pdf)Total_Counseling_a_Handbook.pdf[ Evrópskt þróunarverkefni sem hafði að markmiði að hanna og þróa "heildræna lífsráðgjöf" við ungt fólk.]994 Kb

Additional information