Hópefli
- Details
- Written by Björn Vilhjálmsson
Hópefli: Stutt hópefli stendur í 2-4 stundir. Það hristir hópinn saman og fólk kynnast nánar, kemur blóðinu á hreyfingu, gerir hópa virkari, virkjar einnig hláturinn, og samskiptin eflast þegar glímt er við óvenjuleg og áhugaverð viðfangsefni.
Langt hópefli stendur í meira en 4 stundir. Þar er verkefnum, æfingum og leikjum til að virkja fólk í athöfnum og efla samskiptin í glímu er við óvenjuleg og áhugaverð viðfangsefni. Þátttakendurnir draga sjálfir ályktanir og lærdóma af reynslu sinni með aðstoð vegvísis og velta fyrir sér hvernig megi flytja nýja námið í vinnuna eða aðrar aðstæður.
Teymisþjálfun: Teymi eru oft fámenn og yfirleitt skipuð um tiltekin verkefni eða afurð, og lýkur líftíma teymisins oft þegar verkinu er lokið. Samskipti og líðan einstaklinganna í teyminu skiptir oft minna máli en að skila afurðinni á umsömdum tíma, en skiptir þó alltaf máli.
Liðsheildarvinna: Að gera góða liðsheild er að stuðla að opnum og heiðarlegum samskiptum í hópnum. Góð liðsheild nýtir fjölbreytileikann og þá ólíku hæfileika og færni sem búa í liðinu. Það tekur tíma, virka samveru og fjölbreytt samskipti að byggja upp trúnað, traust og reynslu sem öflugar liðsheildir sýna í verkum sínum

