Hugmyndafræði Áskorunar

Hugmyndafræði Áskorunar ehf má lýsa með þeim lykilorðum og skilgreiningum, sem koma hér á eftir. Þau lýsa viðhorfum okkar og afstöðu til lífsins.

Frelsi

Við trúum á frelsi einstaklingsins til að vera gerandi í eigin lífi og við trúum að þessu frelsi fylgi bæði val og ábyrgð. Við trúum því jafnframt að einstaklingsfrelsið endi þar sem frelsi þitt og frelsi mitt mætast, og eftir það verðum við að semja til hagsbóta fyrir báða.

Eignarhald

Við erum eigendur upplifana okkar, reynslu og náms – og sjálf gefum við þeim merkingu.

Virðing og heiðarleiki

eru gildi sem við metum mikils og eru altæk, hvort heldur það er gagnvart okkur sjálfum, öðrum, samfélaginu og umhverfinu. 

Trúmennska

Að okkar mati felst í orðinu trúmennska, að vera trúr sjálfum sér, að vera trúr verkefnum sínum og viðfangsefnum, að vera trúr öðrum mönnum, að vera trúr öðrum lífverum á jörðinni og Jörðinni sjálfri. Að sýna trúmennsku í lífinu táknar að við reynum að bæta heiminn á meðan við dveljum í honum, og skiljum við hann í betra ástandi en þegar við komum í hann.

Áskorun og áhætta

Okkur er ljóst að að lífið og allt nám felur í sér áskorun og áhættu, sem einstaklingurinn þarf bæði að vera meðvitaður um og taka tillit til. Okkur er einnig ljóst að eins og skjaldbakan, komumst við ekkert áfram nema við stingum höfðinu út úr skelinni!

Og það er ekki búið enn, því á næstu síðu er fleira sem okkur finnst mikilvægt!