Markhópar
Það er mikilvægt fyrir manneskjur að vaxa og þroskast í lífinu, og læra sem fjölbreyttastar aðferðir til að takast á við bæði það jákvæða og það neikvæða sem lífið færir okkur. Því fleiri bjargir sem við höfum, þeim mun betur tekst okkur að takast á við verkefnin í lífinu. Eins og bandaríski sálfræðingurinn Abraham Maslow sagði eitt sinn: „Ef hamar er eina verkfærið sem þú átt til að leysa vandamál með, þá hefur þú tilhneigingu til að sjá öll vandamál sem nagla“.
Áskorun ehf hefur að meginmarkmiði að styrkja vitund, efla vöxt og stuðla að þroska einstaklinga og hópa, út frá þeirri grundvallarskoðun að:
- Það þurfi að huga vel að eigin vexti og þroska, til að geta stuðlað að og stutt við vöxt og þroska annarra.
- Því meiri vitund sem við höfum um það sem gerist innra með okkur sjálfum og því betur sem við sjáum hvernig viðbrögð okkar mótast af hugsunar- og hegðunarmynstrum, þeim mun betur getum við skilið aðra og aðstoðað þroska þeirra.
Við beinum starfsemi okkar að fólki sem vill þroskast í lífinu, en sérstaklega að þeim sem vinna með öðru fólki og að fólki sem sjálft er verkfæri í starfinu.
Við klæðskerasaumum þjálfunarferlin okkar að þörfum hópanna sem til okkar leita og í samtali við verkkaupa greinum við náms- og þjálfunarmarkmiðin. Við erum þó alltaf meðvituð um að þjálfunarferli eru lífræn ferli, sem hugsanlega þarf að aðlaga, þróa og breyta þegar á hólminn er komið.

