Ratleikir með börnum

Fyrir hverja: Námskeiðið getur hentað mjög breiðum hópi þátttakenda, t.d. kennurum, starfsmönnum og stjórnendum í skólum, frístundaheimilum, frístundamiðstöðvum, félagsmiðstöðvum og félögum.

Markmið:

  • Að fjalla almennt um útinám og útilíf barna. 
  • Að þjálfa þátttakendur í að nota ýmsar gerðir ratleikja í skólastarfi. 
  • Að þróa kennslu- og starfshætti í skólum, stofnunum og félagasamtökum.
  • Að auka þátt útivistar og hreyfingar (hjá nemendum og kennurum).
  • Að kynna rathlaup.

Efni: Fjallað er um kennslufræði ratleikja og hvernig nýta má þá í námi, kennslu og leik. Kynntar ólíkar leiðir við að hanna og setja upp ratleiki.
Farið í stuðningsbúnað eins og áttavita, GPS, kort ofl. Þátttakendur þjálfaðir í að beita þessum aðferðum og búa til góðan ratleik. Einnig fjallað um rathlaup, útinám og útilíf með börnum.
Lengd: 10 kennslustundir eða einn langur dagur.
Kennarar: Jakob Frímann Þorsteinsson og Guðmundur Finnbogason.


Additional information