Útivist í skólastarfi

Fyrir hverja: Kennara, starfsmenn og stjórnendur í skólum.

Markmið:

  • Að kynna mikilvæga þætti ferðamennsku
  • Að fjalla um öryggismál og þjálfa þátttakendur í áhættumati.
  • Að kynna uppeldisfræði útilífs og áhrif á nám og kennslu.

Efni: Um útivist er fjallað með ýmsum hætti í aðalnámskrá grunnskóla og áhersla lögð á að nemendur eigi þess kost að upplifa útivist sem hluta af sínum námi. Fjallað er um fjölbreyttar leiðir til að flétta saman útivist og skólastarf, sem leið að uppeldislegum markmiðum. Áhersla lögð á öryggismál, hlutverk kennara og uppeldisfræði útivistarlífs.
Námskeiðið er bæði í boði staðbundið og einnig sem útivistarferð þátttakenda, þar sem efninu er miðlað á vettvangi.
Lengd: 16 kennslustundir eða tveir dagar.
Kennarar: Jakob Frímann Þorsteinsson og Björn Vilhjálmsson.

Additional information