Skólar og menntastofnanir

Hjá Áskorun er mikil sérþekking um kennslufræði úti-, ævintýra- og reynslunáms sem gagnast skólum og menntstofnunum sem vilja nýta sér það námsumhverfi sem er undir berum himni. Aðferðir úti-, ævintýra- og reynslunáms eru ekki formlegar, eins og skólakennsla innan fjögurra veggja er oftast, og njóta þessar aðferðir virðisaukans sem felst í „ríku“ námsumhverfi utan dyra. Sjá Vinnustofur og Námskeið.

Hópar verða til af margvíslegum ástæðum, til að uppfylla ólík markmið og hópar eiga sín eigin líf. Hópar eru flókin mannleg kerfi, og stundum verða hópar „minna en“ summa einstaklinganna gefur tilefni til og stundum verða þeir „meira en“ summan gefur tilefni til. Stundum byrja hópar vel en missa svo flugið og aðrir hópar byrja illa en verða svo frábærir.
Við getum hjálpað hópum til að laða fram og nýta bestu eiginleika sína og meðlimum hópa getum hjálpað til að skilja betur hegðun sína sem leiðtoga, leiðbeinanda og sem virkra meðlima í hópi. Námskeið Áskorunar eru tækifæri og gott næði fyrir hópa til að hugsa.

Sérfræðingar Áskorunar hafa auk þess margra ára reynslu af meðferðarstarfi og vinnu með erfiðar aðstæður sem upp geta komið í hópum, eins og erfiðan ágreining, hóphugsun og einelti. Sjá Vinnustofur og Námskeið

Í Áskorun er einnig yfirgripsmikil þekking á undirbúningi, skipulagi og framkvæmd stuttra sem langra ferðalaga um öræfi á Íslandi og víðar, og best þekkjum við til gönguferða með bakpoka, hjólaferða og siglinga á seglbátum eða róðrarbátum, kanó og kajak. Sjá Ráðgjöf og stuðningur.

Við bjóðum einnig upp á örvandi fyrirlestra um ýmis málefni sem sem mæða á manneskjum. Sjá Fyrirlestrar.

Additional information