Áskorun býður ...

      • fræðslu og þjálfun fyrir hópa, sem vilja nýta betur þá greind og þá þekkingu sem býr í hópum (t.a.m. teymum, starfshópum, stofnunum og fyrirtækjum) hvort sem einstaklingarnir eru í hlutverki leiðtoga, leiðbeinanda eða þátttakenda í hópi.
      • margskonar aðferðir og leiðir til að vinna með, bæta, breyta og efla hópa, og við byrjum þar sem hóparnir eru staddir á hverjum tíma.
      • upp á fræðslu, nám, þjálfun og ráðgjöf um efnisþætti og aðferðir, sem eru sérstaklega aðlöguð að þörfum hópanna sem til okkar leita.
      • margt af því efni sem tilheyrir sérsviðum okkar, höfum við útfært fyrir ýmsar aðstæður og markhópa, t.a.m. í formi fyrirlestra, vinnustofa eða lengri námsferla.
      • upp á margs konar fræðslu og þjálfun fyrir Skóla og menntakerfið - Fyrirtæki og stofnanir - Félög og félagasamtök.

Innan vébanda Áskorunar víðtæk reynsla af stjórnun og þátttöku í evrópskum verkefnum og veitum við ráðgjöf á því sviði. Við höfum starfað að fjölbreyttum verkefnum sem hlotið hafa styrk frá menningar- og menntaáætlunum Evrópusambandsins, svo sem Leonardo da Vinci, Socrates, Grundtvig og Youth - Evrópu Unga Fólksins.

Þóknun og verksamningar: Að lokinni greiningu á verkefninu og markmiðum þess gerum við tilboð í verkið. Bæði verð og tímalengd verkefna er samkomulagsatriði milli verkkaupa og Áskorunar.

Einnig er innan vébanda Áskorunar víðtæk reynsla af að leiða alþjóðleg (evrópsk!) verkefni sem styrkt hafa verið að menningar- og menntaáætlunum Evrópusambandsins, s.s. Leonardo da Vinci, Socrates, Grundtvig og Youth - Evrópu unga fólksins og veitum við ráðgjöf á því sviði.

Ýmsir aðilar, fyrirtæki, stofnanir og félög hafa notið þjónustu Áskorunar ehf á liðnum árum, þar á meðal eru: ÍTR, Velferðarsvið og Menntasvið hjá Reykjavíkurborg, Akureyrarbær, Hlíðaskóli og Langholtsskóli í Rvk, Grunnskólar Egilsstaða og Fella, Landsvirkjun, Síminn, Ris byggingaverktakar, Fangelsismálastofnun o.fl.