Námskeið erlendis
Via Experientia – International Academy of Experiential Education
Áskorun ehf er aðili að Via Experientia - International Academy of Experiential Education og hefur um árabil starfað á Evrópuvísu að þjálfun kennara, leiðbeinenda, leiðtoga í æskulýðsstarfi og fleiri faghópa.Via Experientia varð til sem frumkvæðisverkefni í fullorðinsfræðslu, sem styrkt var af Grundtvig styrkjaáætlun Evrópusambandisns. Sjá Samstarfsaðilar.
Via Experientia - Partners
Via Experientia –Partnerser samstarfsvettvangur nokkurra sérfræðinga og menntunar- og þjálfunarfyrirtækja sem um árabil hafa starfað saman að því að kynna og þjálfa fólk samkvæmt hugmynda- og aðferðafræði Reynslunáms eða reynslumiðaðs náms (e. experiential learning).
Via Experientia – félagar, bjóða árlega upp á Via Experientia - LTTC eða Via Experientia - langtíma þjálfunarnámskeið, um hugmynda- og aðferðafræði reynslumiðaðs náms.
Að auki bjóðum við árlega upp á nokkrar 3-4 daga vinnustofur um sérstaka náms- eða efnisþætti, þar sem kafað er djúpt í einn afmarkaðan þátt.
LTTC
Via Experientia LTTC - Langtíma þjálfunarnámskeið á Evrópuvísu:
Sjá heimasíðu Via Experientia Partners.
Þetta námskeið er kennt á ensku og fer fram í fjölþjóðlegu samhengi.Náms- og þjálfunarferlið er í þremur hlutum og fer fram á þremur stöðum.
Fyrsti hlutinn er 12 daga námskeið í Litháen um reynslunám og ígrundun, sem fer fram með reynslunámsaðferðum og að miklu leyti utan dyra.
Annar hlutinn felst í að þátttakendurnir beita hugmynda- og aðferðafræði reynslunáms á heimaslóðum, með ráðgjöf og stuðningi frá þjálfarateyminu.
Þriðji hlutinn fer fram á Ítalíu 9-10 mánuðum síðar.Þar verður haldið áfram að dýpka hugmyndafræði og aðferðir útimiðaðs reynslunáms og aðrar útfærslur en okkar kynntar, og síðan er námsferlinu lokað.
Workshops: Sjá heimasíðu Via Experientia Partners.
Árlega bjóðum við upp á nokkrar 3-4 daga vinnustofur um sérstaka náms- eða efnisþætti ígrundandi reynslunáms.Þarna er kafað enn dýpra í einn afmarkaðan þátt og möguleikar hans og takmarkanir kannaðir.
Árið 2012 verða vinnustofur á vegum Via Experientia partners um:
- Drama – leikrænar aðferðir í reynslunámi.
- Group – hópafræði fyrir lengra komna.
- Silence – þögn sem reynslunám og aðferð til að auka þroska.

