Ráðgjöf og stuðningur
Áskorun ehf veitir ráðgjöf við einstaklinga og hópa á nokkrum sviðum, og má sem dæmi nefna eftirfarandi:
- Reynslumiðað nám
- Úti- og ævintýranám
- Útikennsla og útieldun
- Liðsheildarvinna og efling hópa
- Leiðtogaþjálfun
- Samskipta þjálfun
- Útivist og ferðalög - almennt
- Útivist og ferðalög - umgjörð meðferðarstarfs og stuðnings við (ungt) fólk í sálfélagslegum vanda.
Ráðgjöfin getur verið með ýmsum hætti og m.a. falist í: Úttekt og mati þá starfssemi nú þegar er starfrækt. Stuðningi við innleiðleiðingu á nýjum starfsháttum eða ráðgjöf í vinnu við þróunarverkefni. Ráðgjöfin er ávallt sniðin að þörfum og væntingum verkkaupans, og gerum við síðan tilboð í verkið.
Hægt er að sníða fræðslu og ráðgjöf að ólíkum hópum og hafa leiðbeinendur Áskorunnar m.a. unnið með ákveðna efnisflokka eða þemu í skólum, og sem dæmi unnum við samtímis með þrjú þemu (einelti, hópefli og holla hreyfingu) í heilu skólahverfi. Var þá byrjað á að vinna með nemendum að morgni, síðan var unnið með kennurum síðdegis og foreldrum um kvöldið.
- útivist og ferðalög
- útieldun
- ratleikir í starfi með börnum

